Fundargerð
Atvinnumálanefnd
08.05.2013
18. fundur
haldinn í Kjarna miðvikudaginn 08. maí kl. 16:30
Friðrika Sigurgeirsdóttir
Vagn Sigtryggsson
Eiður Jónsson
Ásta H. Hersteinsdóttir
Ásta Svavarsdóttir
Dagbjört Jónsdóttir, sveitastjóri
1. Friðrika setti fund 16:30.
2. Farið yfir fundargerð Íbúafundar er haldinn var í Ýdölum 23. febrúar síðastliðinn um Búfjársamþykkt sveitarfélagsins.
Farið yfir tillögur frá Ólafi Dýrmundssyni. Ákveðið að verða við tillögum Ólafs sem samrýmast þeim óskum sem komu fram á íbúafundinum að vinna betur í Búfjársamþykktinni og fá lögregluna í samstarf til að greina í sameiningu helstu svartbletti þar sem reynslan sýnir að mest er keyrt á búfé. Í framhaldinu verði óskað eftir formlegum viðræðum við Vegagerðina með tilvísun í 2. mgr. , 52 gr. Vegalaga nr. 80/2007. Þá þarf að gera úttekt á ástandi girðinga í kringum þéttbýliskjarna sveitarfélagsins.
3. Minka- og refaveiðar. Farið yfir samninga við veiðimenn um refa- og minkaveiðar.
Ákveðið að taka upp samninga við veiðimenn. Sveitarstjóri lagði samninga fram til kynningar.
Fleira ekki fært til bókar og fundi slitið 18:25