Fundargerð
Ungmennaráð
13.01.2020
6. fundur
haldinn í Kjarna mánudaginn 13. janúar kl. 16:20
Ari Ingólfsson, Edda Hrönn Hallgrímsdóttir, Hrólfur Jón Pétursson, Haraldur Andri Ólafsson og Þórunn Helgadóttir.
Eyþór Kári Ingólfsson, fulltrúi Félags- og menningarmálanefndar og Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. Kynning, skráning símanúmera og netfanga
Nefndarmenn kynntu sig og gáfu upp netföng og símanúmer. Rætt um með hvaða hætti eigi að boða fundi o.fl.
2. Markmið ungmennaráða
Farið yfir markmið ungmennaráða. Einnig farið yfir, í stuttu máli, hlutverk sveitarstjórnar almennt.
3. Handbók ungmennaráða sveitarfélaga
Handbók ungmennaráð sveitarfélaga kynnt nefndarmönnum en hún er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins og nefndarmenn hvattir til þess að kynna sér hana vel.
4. Erindisbréf ungmennaráðs og hlutverk
Farið vel yfir erindisbréf ungmennaráðs Þingeyjarsveitar sem einnig er aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins. Nefndarmenn hvattir til þess að kynna sér ýmsar upplýsingar á heimasíðunni sem tilheyra starfsemi sveitarfélagsins og þeirra málaflokki.
5. Kosning formanns og ritara
Ari Ingólfsson var kjörinn formaður ungmennaráðsins og Hrólfur Jón var kjörin ritari.
6. Ungt fólk og Eyþing febrúar 2020
Viðburðurinn „Ungt fólk og Eyþing“ sem haldinn verður á Húsavík 10. og 11. febrúar n.k. var kynntur og dagskrá lögð fram. Nýkjörinn formaður stefnir á að fara á viðburðinn sem fulltrúi Þingeyjarsveitar.
7. Boðun funda og ákvörðun um næsta fund
Rætt um að stofna til samskipta á Facebook en samþykkt að fundarboð yrðu með formlegum hætti í tölvupósti. Samþykkt að halda næsta fund fljótlega eftir páska.
8. Önnur mál
Engin önnur mál.
Fundi slitið kl. 17:17